Vissir þú ...
DIFN | 21.Janúar 2012 | Erla Rún
Kirkjuskóli 22. janúar
Kirkjuskóli 22. janúar Sæl öll, Við ætlum að hittast í kirkjuskólanum næsta sunnudag Við verðum í Kanalhúsinu Damstræde 48 og byrjum klukkan 11:00 Við ætlum að syngja, leika, lesa og lita saman hlökkum til að sjá ykkur kv. Camilla, Erla Rún, Ásdís Ósk, Hanna Vigdís og Thea DIFN | 14.Janúar 2012 | Birna Bjarnarson
UUUUPPPPPSSSEEEELLLLTTTT!!!!!!!!!!
Nú er orðið uppselt á þorrablótið í Álaborg og þakkar þorrablótsnefndin frábærar viðtökur. Ef þú hefur áhuga á að koma geturðu sent póst á midasala@difn.dk og komist á biðlista. Við seljum ósóttar pantanir frá 26.jan. Stefnir allt í frábært blót. Æfingar standa yfir á hinum margrómuðu skemmtiatriðum, búið að panta matinn og Skítamórall á fullu að undirbúa sig fyrir ferðalagið til Álaborgar. Að venju verður happadrættið á sínum stað þar sem allir gestir geta tekið þátt. Á meðal vinninga eru: 70 þús kr.gjafabréf frá Samskipum búslóðaflutingar, gjafabréf frá Icelandair, hvalaskoðun á Húsavík, klipping hjá Stellu, nudd hjá nuddstofu Hönnu, gjafabréf frá Hurlumhejhuset Hjørring og margt margt fleira. Munið að miði er möguleiki ;) Sjáumst hress á frábæru blóti :) DIFN | 5.Janúar 2012 | Birna Bjarnarson
Þorrablótið 11 febrúar..........
Me...me... með ullinni og öllu Þorrablót Difn 11 febrúar 2012 Miðasala á Þorrablót Difn er í fullum gangi og örfáir miðar eftir. Frábær matur, gott fólk og hljómsveitin Skítamórall mætir til Álaborgar og heldur uppi stuðinu fram á nótt. Sendu póst á midasala@difn.dk ef þú vilt skella þér á blótið í ár DIFN | 26.Desember 2011 | Erla Rún
Áramótabrenna 31. des
Áramótabrenna DIFN verður venju samkvæmt á bílastæðinu við Budumvej, til móts við Vilsundvej. Hittumst og kveðjum gamla árið, skjótum upp blysum og syngjum saman. Brennan hefst kl: 21:00 Kveðja stjórn DIFN DIFN | 17.Desember 2011 | Erla Rún
Jólakveðja frá þorrablótsnefnd
DIFN | 13.Desember 2011 | Erla Rún
Jólaball 26. des
Sæl öll, jólaball DIFN verður haldið 26. desember kl:14:00 Við verðum í Kanalhúsinu, Damstræde 48 og ef við erum stillt og góð þá koma jólasveinar með íslenskan glaðning fyrir káta krakka. Við dönsum í kringum jólatré og höfum það gaman saman Það verður sameiginlegt kökuborð sem allir eru beðnir um að koma með eitthvað góðgæti á. Sjoppan verður á staðnum, með íslenskt sælgæti, gos og djús Allir velkomnir, hlökkum til að sjá ykkur öll Stjórnin
DIFN | 8.Desember 2011 | Erla Rún
Kirkjuskóli jólastund 11. des
Jæja, þá er komið að seinasta kirkjuskólanum á þessu ári við hittumst kl 11 sunnudaginn 11. des og höfum það huggulegt saman. Við ætlum að syngja og leika saman, tala um jólin og gera fleira skemmtilegt. Allir eru beðnir um að hafa með sér eitthvað á sameiginlegt borð, við verðum eins og alltaf með djús og kaffi í boði. Sjáumst vonandi sem flest kv. Hanna Vigdís, Thea, Erla Rún, Ásdís Ósk og Camilla DIFN | 5.Desember 2011 | Birna Bjarnarson
Þorrablót
Me...me... með ullinni ogöllu...
11.febrúar 2012 verður hið árlega þorrablót DIFN í félagsheimilinu Øster Uttrup. Í ár toppum við allt og alla og fáum hljómsveitina SKÍTAMÓTAL til Álaborgar til að spila fram á rauða nótt á meðan við spriklum á dansgólfinu. Taktu kvöldið frá fyrir frábæra skemmtun með fullt af skemmtilegu fólki Miðaverð 380 kr. Forsala aðgöngumiða er hafin fyrir félagsmenn DIFN. Ert þú ekki skráð/ur í félagið? Þá getur þú gert það núna um leið og þú pantar miða á midasala@difn.dk
Sjáumst hress á skemmtun ársinsDIFN | 23.Nóvember 2011 | Erla Rún
Félagsgjöld
Sæl öll, við minnum á greiðslu félagsgjalda 100 kr fyrir fullorðna og 10 kr fyrir börn Reikningsnúmer DIFN er: Einnig er hægt að greiða félagsgjöld þegar mætt er á viðburði, sá næsti er Aðventubingó á sunnudaginn 27. nóvember. Þorrablótið er einnig á næsta leiti og mun forsala fyrir félagsmenn hefjast í desember svo það er ekki seinna vænna að greiða félagsgjöldinn svo hægt sé að tryggja sér Þorrablótsmiða. kv. stjórnin DIFN | 19.Nóvember 2011 | Erla Rún
Jólapakkar - jólapakkar
Jólapakkar - jólapakkar Eimskip mun eins og undanfarin ár vera með jólapakkasendigu til Íslands Allar upplýsingar um ferlið er að finna hér Hér kemur svo skjalið sem þarf að fylla út og senda með: jólapakkar kv. DIFN
Viðburðadagatal DIFN
|







