Vissir þú ...

  • .. að árgjald DIFN eru aðeins 100 kr.
  • .. að á ári heldur DIFN 15 samkomur
  • .. að í DIFN eru 200 félagsmenn
  • .. að DIFN er fyrir alla aldurshópa.
 
Áladívur | 28.Febrúar 2010 | Jón Haraldsson 
Keila 13. Mars kl. 20:00

Brjálað að gera hjá Áladívunum.

Ætlum enn og aftur að gera okkur glaðan dag og fara í Keilu og fá okkur pizzu í leiðinni. Þær sem ætla að vera með verða að skrá sig sem fyrst þar sem við þurfum að panta með góðum fyrirvara. Staðurinn sem við erum að fara á heitir Backstreet Bowl og er staðsettur niðri í bæ á Vesterbro 95A.
.

Minni aftur á Facebook síðuna okkar: Facebook/áladívurnar, hægt er að skrá sig þar en þær sem ekki eru með Facebook geta skráð sig hérna: divur@difn.dk 

Kv. Áladívurnar



Áladívur | 22.Febrúar 2010 | Jón Haraldsson 
Bíóferð 24. Febrúar kl. 21:15

Jæja Áladívur. Hvernig væri nú að gera sér skemmtilegt kvöld. Á miðvikudaginn, þann 24. feb ætlum við að fara saman að sjá myndina Valentine’s day.

Planið er að hittast niðurfrá ca. 30 mín fyrir sýningarbyrjun. Það er enginn sem sér um að panta miðana fyrir okkur. Það er því um að gera að hópað sig saman og pantað saman. Aðalmálið að við séum í sama salnum.

Einnig auglýst inn Facebook/áladívurnar

Kv. Áladívur.



Áladívur | 11.Október 2009 | Jón Haraldsson 
Á leið til Gautaborgar

Jæja dívur þá erum við á leið til Gautaborgar þann 14. nóvember. Við erum nú þegar 17 stk sem ætlum að skella okkur í smá húsmæðraorlof. Ef þig langar að koma með, og hafa gaman með fullt af ofur hressum skvísum þá endilega hafðu samband við okkur með að senda póst á rakel80@mi.is. Skráningu líkur 14. nóvember kl 12, þar sem pöntunin þarf að vera komin til StenaLine þann dag.


Siglt er frá Fredrikshavn kl 7:15 sem þýðir að við erum komnar kl 11:30 til Gautaborgar. Gist verður á Scandic Hotel Opalen sem liggur mitt á milli miðbæjarins og Liseberg.
Heimferð er síðan 15. nóvember kl 16. Við ættum að leggja að bryggju í Fredrikshavn kl 19:10.

Vona að við verðum sem allra flestar :o)

Með kveðju áladívurnar.



Áladívur | 5.Október 2009 | Jón Haraldsson 
Áladívufundur fimmtudaginn 8.okt.2009

Kanalhúsinu,

Damstræde 48,

Aalborg öst

Kl.20:30

Nú er komið að því að fara að skipuleggja æsispennandi vetrardagskrá Áladívana. Allar konur sem hafa áhuga á að gera eitthvað skemmtilegt, með skemmtilegum konum, eru velkomnar.


Ef þú lumar á góðri hugmynd handa Áladívunum þá skaltu ekki láta þig vanta á fundinn!

Dagskráfundarins:


1. Starfsemi félagsins kynnt

 

2.Dagskrá vetrarins skipulögð

 

3. Fjáröflunarleiðir ræddar

 

4. Önnur mál

 

Vonumst til að sjá fullt hús af skemmtilegum dívum, sem vilja leggja sitt af mörkum, til að gera dagskrá vetrarins ógleymanlega.

 

Nefndin

 



Áladívur | 7.Apríl 2009 | Jón Haraldsson 
Stelpufélagið

Áladívurnar eru félagsskapur stelpnanna í Álaborg.

Stelpurnar hittast nokkrum sinnum á ári til þess að gera sér glaðan dag. Til dæmis hafa hafa Áladívurnar;

  • Farið saman út að borða
  • Farið í bowling
  • Staðið fyrir balli (bara stelpur)
  • Farið til Gautaborgar
  • Ásamt mörgu öðru.

Allar konur eru hvattar til þess að vera með í félagsskapnum.

Ef þú villt vera með, getur þú annað hvort sett þig í samband við e-h stelpnanna sem búa hérna, eða skráð þig á facebook síðu Áladívanna. Einnig eru Áladívurnar með sitt eigið spjall svæði.

Til þess að gera meðlimur þarftu aðeins að ýtta á facebook merkið...



Krafa er gerð um að þær sem vilja vera með í Áladívunum, verða að vera félagsmenn í DIFN.

Með kveðju, Áldívurna