Vissir þú ...

  • .. að árgjald DIFN eru aðeins 100 kr.
  • .. að á ári heldur DIFN 15 samkomur
  • .. að í DIFN eru 200 félagsmenn
  • .. að DIFN er fyrir alla aldurshópa.
 
FÍFA | 12.Ágúst 2009 | Jón Haraldsson 
Áfram Ísland

Miðvikudaginn, 19. ágúst næst komandi, mun íslenska karlalandsliðið í körfubolta spila á móti því dansk hér í Álaborg.

Leikurinn verður spilaður í Aalborg stadionhal, sem er á Annebergvej 48. Fyrir aftan Aalborg station.

Leikurinn hefst kl 19:15 og kostar 70 krónur fyrir fullorðna og 30 krónur fyrir 16 ára og yngir, inn.

Danirnir segja á heimasíðu sinni að þetta sé eina von þeirra um sigur í haust. Mætum öll og kaffærum þeim, sýnum hvernig á að hvetja sitt lið.

Áfram Ísland.



FÍFA | 18.Apríl 2009 | Jón Haraldsson 
FIFA - Útibolti...nýtt nýtt

Ákveðið hefur verið að föstudagsboltinn verði framvegis spilaður kl: 16:30. Einnig er verið að gera tilraunir með fótboltaæfingu á sunnudögum kl: 11:00

Það er eftir sem áður spilað á sama stað, Mellervangskóla, Frøstrupvej 4 Aalborg Øst.

Inni á spjallsíðu Kolkrabbans, er alltaf hægt að fá nýjustu upplýsingar, er menn því hvattir til að fylgjast með.

Kv. FIFA



FÍFA | 24.Nóvember 2008 | Þorsteinn Sævar 
Skráðu þig á æfingar

Búið er að færa fótbolta spjallið yfir á spjallsvæði kolkrabbans og þar geta menn skráð sig á æfingar. Til þess þarf þó að skrá sig á spjallsvæðið og þar með skrá sig í Kolkrabbann.

Spjallsvæði Kolkrabbans



FÍFA | 29.Ágúst 2008 |  
Fótbolti á föstudögum

Nú er sú árstíð að íslenskir nýbúar flykkjast til Álaborgar. Bíð ég þá velkomna og í leiðinni langar mig til að kynna fyrir fótboltaáhugamönnum, sem eru vonandi einhverjir, klúbbinn FIFA.

FIFA stendur fyrir „Félag Íslenskra Fótboltaáhugamanna í Álaborg“. FIFA meðlimir hafa hist í ómunna tíð við tuðruspark og hafa haft hina mestu skemmtun af. Á veturnar spilum við inni og þegar hlýna fer í lofti höfum við sleppt okkur út, eins og beljum á vori. Allir sem hafa áhuga á fyrirbærinu fótbolta og að hitta hressa kalla eru velkomnir.

Við hittumst í íþróttahúsinu við Mellervangskólann kl 20:00 á föstudögum. Ég læt fylgja með slóð á kortasíðu svo hægt sé að átta sig á því hvar þetta er í bænum, Mellervangskólinn er við Frøstrupvej 4, 9220 Aalborg Øst.

Ef einhverjar spurningar vakna er um að gera að hringja eða senda póst, síminn hjá mér er 21674357 og netfang hallbjorn71@gmail.com.

Kveðja Hallbjörn



FÍFA | 23.Ágúst 2008 |  
Ísland fær gullið

Nú er að duga eða drepast, fá strákar okkar gullið í þetta sinn eða verðum við að SÆTTA okkur við silfrið.

Okkur hefur verið boðið að horfa á þennan viðburð á risaskjá á Hótel phönix, Vesterbro 77, Aalborg. Og mæting er stundvíslega kl:9.30 og leikurinn byrjar kl:9.45.

Hótelið selur bjór og kostar hann 20kr, og difn býður upp á smá snakk.

Við vonum að sem flestir sjái sér fært á að mæta og styðja strákana okkar.

kv. Stjórnin