Vissir þú ...

  • .. að árgjald DIFN eru aðeins 100 kr.
  • .. að á ári heldur DIFN 15 samkomur
  • .. að í DIFN eru 200 félagsmenn
  • .. að DIFN er fyrir alla aldurshópa.
 
Kórinn | 29.Júní 2009 | Jón Haraldsson 
Söngstjóri óskast

Sönghópur íslendingafélagsins auglýsir eftir söngstjóra fyrir næsta vetur.

Viðkomandi þarf að geta lesið nótur og spilað á hljóðfæri.

Launin eru ánægja,reynsla og skemmtun.

Nánari upplýsingar, ottark@hotmail.com eða birnabjarna@gmail.com

Kórinn | 16.Mars 2009 |  
Sönghópur

Þykir þér gaman að syngja?

Við erum með lítinn sönghóp í Álaborg og erum til í að bæta við skemmtilegu fólki í hópinn. Við syngjum hress og skemmtileg lög og höfum gaman af að syngja hvort sem er í bílnum eða saman á æfingu.

Æfing þriðjudagskvöld í Trekanten kl.20.00.

Kórinn | 14.September 2008 |  
Hefur þú gaman af að syngja?

Syngur þú í sturtu? Eða kannski við eldamennskuna? Gerir þú e.t.v. makann gráhærðan af sífelldum söng þínum?

Komdu í kórinn!!

Kór Íslendingafélagsins tekur loks til starfa á ný eftir sumarfrí þriðjudaginn 16. september, og munu æfingar í vetur vera á fyrrnefndum dögum í Trekanten (Aalborg Øst). Þar hittumst við og syngjum skemmtileg lög og eigum huggulega kvöldstund saman.

Æfingar hefjast klukkan 20:00.

Álakórinn er lítill áhugamannakór sem samanstendur af hressu fólki á öllum aldri, og er eitt af virkustu undirfélögum DIFN. Það skiptir engu máli hversu öflug rödd þín er, svo lengi sem þú hefur áhuga á að syngja og ert ekki hrædd/ur við frægð og frama.

Ekki vera feimin/nn við að mæta og prufa, við bítum ekki!

Mvh

Söngfuglar Álaborgar

Kórinn | 14.September 2008 |  
Syngur þú í sturtu?

Hefur þú gaman af að syngja? Syngur þú kannski við eldamennskuna? Gerir þú e.t.v. makann gráhærðan af sífelldum söng þínum?