Vissir þú ...

  • .. að árgjald DIFN eru aðeins 100 kr.
  • .. að á ári heldur DIFN 15 samkomur
  • .. að í DIFN eru 200 félagsmenn
  • .. að DIFN er fyrir alla aldurshópa.
 
8.Mars 2010 | Jón Haraldsson
Aðalfundur DIFN - 18 mars kl:20

Aðalfundur DIFN verður haldinn þann 18.mars í Kanalhuset sem er staðsett á Damstræde 48, Aalborg øst og hefst fundurinn hefst kl. 20:00.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Skipun fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla formanns.
  3. Skýrslur fulltrúa DIFN í öðrum samtökum.
  4. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.
  5. Inntaka nýrra félaga.
  6. Félagsgjald ákveðið.
  7. Tillögur: Tillögur eiga að berast formanni minnst þremur dögum fyrir aðalfund.
  8. Kosning stjórnarmanna, fastanefndarfulltrúa, endurskoðanda og fulltrúa félagsins í öðrum samtökum.
  9. Önnur mál.

Núverandi stjórn DIFN gefur ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa. 

Veitingar verða í boði, allir félagsmenn eru velkomnir.

Reglur og lög félagsins er hægt að skoða hér.

Kveðja stjórn DIFN



 
Nafn *  
Netfang  
Skilaboð *  
Kóði ?