Fimmtudaginn, 25. feb. næst komandi, mun karlaklúbburinn Kolkrabbinn standa fyrir pókerkvöldi. Spilað verður í Kanalhúsinu, Damstræde 48 og er mæting kl. 20 og byrjað að spila kl: 20:15 Við spilum eftir Texas Hold‘em og er þetta stigamót.
Við sem stýrum pókerklúbbnum viljum gjarnan fá fleiri stráka með. Í því sambandi höfum við ákveðið að bjóða öllum þeim sem ekki hafa spilað póker með okkur áður, tækifæri til að koma og prófa.
Ef þú hefur aldrei mætt áður, þá bjóðum við þér að koma og fá 500 chips frítt til að spila með. Ef þér finnst þetta skemmtilegt, þá bjóðum við þér að greiða BuyIn upp á 60 kr. og fá samsvarandi magn af chips og hinir byrja með.
Þú þarft ekkert að óttast þótt þú hafir litla sem enga reynslu. Það eru allir tilbúnir að hjálpa þér. Við erum að þessu fyrst og fremst til að hafa gaman af og ekki síður að hittast. Þetta er frábær leið til að kynnast öðrum sem búa hér í Álaborg.
Hjálpumst að gera þetta að skemmtilegum pókerkvöldum, og reynum að fá sem flesta með.
Nánari upplýsingar eru að finna inni á www.kolkrabbinn.dk eða þú getur sent mail á poker@kolkrabbinn.dk
Kv. Pókerstjórarnir.