Vissir þú ...

  • .. að árgjald DIFN eru aðeins 100 kr.
  • .. að á ári heldur DIFN 15 samkomur
  • .. að í DIFN eru 200 félagsmenn
  • .. að DIFN er fyrir alla aldurshópa.
 
 
 
 

Spurningar og svör

 
Hvernig get ég tekið þátt í félagslífi DIFN ?
Félagið er opið öllum, þar af leiðandi geta allir tekið þátt í atburðum innan félagsins og hjá undirfélögum þess.

Við bendum þó á að árgjald félagsins lækkar þau gjöld sem sett eru á atburði. Ef viðkomandi vill ekki skrásetja sig í félagið, en hyggst mæta á atburði innan þess, leggst aukalegt gjald á viðkomandi.

Hafi fólk áhuga á að taka þátt í starfi undirfélaga, verður viðkomandi að greiða árgjald í DIFN.
» Upp
 
Hvernig skrái ég mig inní landið?
Til að skrá sig inn í landið og fá kennitölu, ferðu niður í Ráðhús viðkomandi kommúnu.
Í Álaborg er skrifstofan staðsett á:

Bor­ger­ser­vi­ce -​ Cen­tret
Rantzaus­ga­de 6,
9000 Aalborg
Tlf. 9931 1800.
Heimasíða Folkeregister
» Upp
 
Hvað er "Skattaleg heimilisfesti" ?
Námsmenn geta sótt um svokallaða "Skattalega heimilsfesti" og með því fengið endurgreiðslu frá skatti frá Íslandi.

Þessi upphæð getur verið töluverð, og bendum við námsmönnum á að kynna sér málið til hlítar hjá Sambandi íslenskra námsmanna erlendis: www.sine.is
» Upp
 
Bílatryggingar
Til eru ófáar sögur af háum og lágum bifreiðatryggingum í Danmörku. Þó er niðurstaðan yfirleitt sú, að gefir þú þér tíma í að leitast eftir tilboðum frá tryggingaraðilum þá í flestum tilfellum getur þú lækkað þennan kostnað til muna.

Það eitt að bera fram tilboð frá einum til annars tryggingaraðila með von um betri niðurstöðu getur oftar en ekki, hjálpað verulega til.

Einnig skal taka fram að hafir þú verið tjónalaus eða með tryggingarskjöl frá öðrum löndum lækkar það einnig verð talsvert.
» Upp
 
Matvöruverslanir
Stórar og smáar matvöruverslanir liggja á víð og dreif um borgina.

Allnokkrar lágvöruverslanir er að finna í Álaborg, þar má nefna Aldi, Fakta, Rema 1000, Netto, SuperSpar og SuperBest.

Stærri verslanir, sem bjóða upp á mikið úrval af ferskum matvælum, raftækjum og öðru slíku eru m.a Bilka og Fötex.
» Upp
 
Leikskólar
Það ber að velja vel þegar kemur að þeim litlu, eins og gefur að skilja. Margir sem flytja til Danmerkur með börn hafa lent á vegg, þegar kemur að þessum málum.

Leikskólar í landinu eru mjög misjafnir, við mælum eindregið með því að leita til fjölskyldna sem þegar hafa komið sér fyrir í viðkomandi bæ/borg og heyra skoðanir þeirra á viðkomandi leikskóla.

Vanti þig nánari upplýsingar um leikskóla eða annað því tengt, mælum við með að mæta til okkar á næsta atburð. Félagsmenn eru opnir fyrir umræðum um þessi mál.

Börn sem þurfa sérúrræði (ADHD, þroskafrávik eða annað slíkt) skulu leita til stofnunar sem kallast PPR-Aalborg (http://www.ppr-aalborg.dk/).
» Upp
 
Húsaleigubætur
Húsaleigubætur skal sækja um til viðkomandi bæjarfélags.

Flestir íslendingar sem búa í Álaborg, búa í Austurhlutanum (Aalborg Øst), viljum við benda á að þeir sækja um á skrifstofu kommúnunnar í Vejgaard (Vejgaard Bymidte 12, 9000 Aalborg, Tlf. 9931 3551).
» Upp
 

Gagnlegar vefsíður

 
Leigumiðlar
All mörg fyrirtæki eru að leigja út í dag íbúðir á norður Jótlandi, misjafnt er hvernig tryggingargjöld eru á íbúðum.

Leigumiðlar við og í Álaborg:
» Upp
 
Vinnumiðlanir í Danmörk
Í Danmörk eru fjölmargar vinnumiðlanir. Hér er að finna lista yfir helstu vinnumiðlanir
» Upp
 
Netveitur
Danir eru framarlega þegar kemur að háhraðatengingum á lágu verði. Allmörg fyrirtæki eru á markaðnum hér, sum ná þó ekki til allra bæja eða borga.

Taka skal fram að frá pöntun á net-tenginu getur tekið allt að 4-6 vikur að fá hana í hús.

Nokkrar stórar veitur sem bjóða upp á tengingar:
» Upp