Vissir ţú ...

  • .. ađ árgjald DIFN eru ađeins 100 kr.
  • .. ađ á ári heldur DIFN 15 samkomur
  • .. ađ í DIFN eru 200 félagsmenn
  • .. ađ DIFN er fyrir alla aldurshópa.
 
Lög og reglur DIFN

LÖG DANSK-ÍSLENSKA FÉLAGSINS Á NORĐUR JÓTLANDI (DIFN)

Lög DIFN finnast hér á prenthćfu formi.

Nafn og heimili

§ 1
Félagiđ heitir "Dansk-Íslenska Félagiđ á Norđur-Jótlandi", skammstafađ DIFN, og heimilisfang ţess
er Álaborg.

Markmiđ félagsins

§ 2
Markmiđ DIFN er:
• Ađ mynda sameiginlegan félagsskap Íslendinga og Dana á Norđur-Jótlandi sem áhuga hafa á
íslenskum málefnum.
• Ađ stuđla ađ góđu félagslegu samstarfi og styrkja starf sem vinnur ađ sameiginlegum málefnum
félagsmanna.
• Ađ gćta hagsmuna félagsmanna.
• Ađ vinna sjálfstćtt eđa í samvinnu viđ önnur Íslendingafélög ađ ţví ađ skapa og efla vináttubönd
Íslands og Danmerkur.

Félagar

§ 3
Sérhver sá sem áhuga hefur á málefnum félagsins getur gerst međlimur ţess.

§ 4
Stjórn félagsins velur og tilkynnir heiđursfélaga félagsins. Einnig er hćgt ađ nota ađalfund félagsins
til ađ ákveđa heiđursfélaga eftir tillögum stjórnar. Heiđursfélagar skulu heiđrađir á Ţorrablóti
félagsins.

§ 5
Ćđsta vald í málefnum félagsins hefur ađalfundur.
Starfsemi félagsins stýrir stjórnin undir forystu formanns.
Innan vébanda félagsins starfa fastanefndir sem kveđiđ er á í lögum ţess.
Félagiđ getur gerst ađili ađ öđrum samtökum.

Ađalfundur

§ 6
Ađalfundur skal haldinn á fyrsta ársfjórđungi. Hann skal bođađur félagsmönnum skriflega međ
minnst átta daga fyrirvara.
Dagskrá ađalfundar skal vera sem hér segir:
1. Skipun fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla formanns.
3. Skýrslur fulltrúa DIFN í öđrum samtökum.
4. Gjaldkeri leggur fram endurskođađa reikninga félagsins.
5. Inntaka nýrra félaga.
6. Félagsgjald ákveđiđ.
7. Tillögur: Tillögur eiga ađ berast formanni minnst ţremur dögum fyrir ađalfund.
8. Kosning stjórnarmanna, fastanefndarfulltrúa, endurskođanda og fulltrúa félagsins í öđrum
samtökum.
9. Önnur mál.

§ 7
Aukaađalfund skal halda ef stjórn félagsins óskar ţess eđa ef ţriđjungur eđa 25 félagsmenn bera
fram skriflega ósk um ţađ viđ stjórnina. Aukaađalfundur skal bođađur međ sama hćtti og
ađalfundur, sbr. § 6.

§ 8
Kosningarétt á ađalfundi hafa allir félagsmenn sem eru sextán ára og eldri og hafa greitt félagsgjöld til félagsins, ţar á međal ţeir sem ganga í félagiđ og greiđa félagsgjald sitt á ađalfundi.

§ 9
Afl atkvćđa rćđur úrslitum. Til breytinga á lögum félagsins ţarf ţó 2/3 atkvćđa ţeirra félaga sem
sćkja fundinn, sbr. § 29.

Félagsstjórn

§ 10
Stjórn félagsins er kjörin á ađalfundi og skipa hana minnst 5 og mest 9 ađalmenn, nánar tiltekiđ:
formađur, varaformađur, ritari, gjaldkeri og međstjórnendur.
Stjórnin skal kjósa formann úr sínum hópi og skipta međ sér verkum á fyrsta stjórnarfundi eftir
stjórnarkjör.
Gjaldkeri er sjálfskipađur fulltrúi í skemmtinefnd og skal hann annast fjármál nefndarinnar.
Kjörtímabil stjórnar er eitt ár.

§ 11
Á stjórnarfundum rćđur afl atkvćđa. Verđi atkvćđi jöfn skal atkvćđi formanns ráđa úrslitum.

§ 12
Forfallist formađur eđa segi af sér tekur varaformađur sćti hans.
Formenn fastanefnda félagsins skulu jafnframt vera varamenn stjórnar.

Heimild félagsstjórnar

§ 13
Stjórn félagsins hefur heimild til ađ taka lán fyrir hönd félagsins sem félagsmenn sameiginlega eru
ábyrgir fyrir. Heildarlán félagins međ ábyrgđ félagsmanna má aldrei vera hćrra en DKK 50.000.

§ 14
Formađur og gjaldkeri félagsins hafa einir prókúru fyrir hönd félagsins og hafa einnig umbođ til ađ
skrifa undir samninga fyrir hönd félagsins.

§ 15
Stjórn félagsins skal leitast viđ ađ byggja upp sem stćrstan ađalsjóđ (höfuđstól), sem nota á viđ
sérstök tilefni eins og t.d. varđandi húsnćđismál félagsins, stórhátíđir félagsins (stórafmćli) o.fl.
Međ ţessu er ekki átt viđ ađ félagiđ eigi ađ byggja upp höfuđstól á peningum félaga sinna, heldur
er átt viđ styrki sem félagiđ fćr frá Aalborg Kommune og öđrum ađilum.
Ţađ er ekki markmiđ félagsins ađ reka tekjulausa starfsemi ár hvert.

Félagsgjöld

§ 16
Félagsmenn skulu greiđa ársgjald til félagsins. Upphćđ félagsgjalds skal ákveđin á ađalfundi ađ
fengnum tillögum stjórnar.
Félagsađild gildir í eitt ár frá greiđsludegi.

§ 17
Félagsmađur sem ekki endurnýjar félagsađild sína missir sjálfkrafa félagsréttindi sín. Félagsmađur
öđlast réttindi sín á ný ef hann greiđir félagsgjöld.

§ 18
Heiđursfélagar greiđa ekki ársgjald.

§ 19
Hćgt er ađ gerast ćvifélagi međ ţví ađ greiđa ćvifélagsgjald sem stjórnin ákveđur hverju sinni.

Reikningar og endurskođun

§ 20
Reikningsár félagsins miđast viđ ađalfundi. Stjórn setur á hverjum tíma reglur um bókhald.
Reikningar félagsins skulu vera endurskođađir af einum endurskođanda kjörnum af ađalfundi. Afrit
af reikningum félagsins skulu liggja frammi á ađalfundi og skulu ţeir bornir fram til samţykktar á
fundinum.

§ 21
Allir sjóđir félagsins, ađ međtöldum sjóđum fastanefnda sem starfa innan félagsins skulu vera í
vörslu stjórnar.

§ 22
Af ţeim tekjum sem koma inn til félagsins vegna auglýsinga má ráđstafa 20% til ţess ađila sem
aflar auglýsingarinnar og öđrum 20% til ţess ađila sem vinnur ađ uppbyggingu heimasíđu félagsins.

Fastanefndir

§ 23
Á ađalfundi skal kjörinn minnst einn fulltrúi í ritnefnd Mímis. Starfssviđ ritnefndar er ađ annast
útgáfu eins eintaks af Mími á starfsárinu ásamt Sími sem gefin skal út á fyrsta ársfjórđungi. Einnig
skal ritnefndin annast uppfćrslu heimasíđu félagsins, www.difn.dk. Ţar ađ auki skal nefndin sjá
um uppfćrslu annarra heimasíđna félagsins eins og t.d. www.fifa.difn.dk og www.mimir.difn.dk.
Ritnefndin skal einnig ađstođa fastanefndir innan félagsins viđ ađ koma upp heimasíđu undir léni
D.I.F.N.

§ 24
Á ađalfundi skal kjörinn minnst einn fulltrúi í skemmtinefnd DIFN. Starfssviđ skemmtinefndar er ađ
annast skipulagningu og framkvćmd skemmtanna félagsins í samvinnu međ stjórn félagsins.
Skemmtinefnd sér einnig um skipulagningu ţorrablóts félagsins.

§ 25
Á ađalfundi skal kjörinn minnst einn fulltrúi í ćskulýđsráđ DIFN. Starfssviđ ćskulýđsráđs er ađ hafa
yfirumsjón međ íţróttastarfssemi, barnastarfi, kirkjuskóla og annari starfsemi er falla undir verksviđ ćskulýđsráđs.

§ 26
Um allar fastanefndir félagsins gildir ađ kjörnir og tilnefndir nefndarfulltrúar hafa frjálsar hendur
međ ađ velja sér samstarfsađila.

§ 27
Fastanefndir félagsins skulu fara ađ fyrirmćlum stjórnar varđandi međferđ fjármuna og
bókhaldsreglur sbr. § 18.

§ 28
Leikfélagiđ Ultima Thule er hluti af félagsstafsemi D.I.F.N. D.I.F.N. er fjárhagslega ábyrgt hvađ
varđar rekstur leikfélagsins og skal gjaldkeri D.I.F.N. vera gjaldkeri leikfélagsins og sitja í stjórn
ţess.
D.I.F.N. skuldbindur sig til ađ fjármagna starfsemi leikfélagsins fyrirfram međ ţví skilyrđi ađ
vilyrđi fyrir styrkjum séu fyrir hendi. Stjórn D.I.F.N. skal samţykkja fjárhagsáćtlun leikfélagsins,
en kemur ađ öđru leyti ekki ađ rekstri leikfélagsins.
D.I.F.N. skal úthluta úr sjóđi leikfélagsins hverju sinni og sé hagnađur á rekstri leikfélagsins, má
nota hluta af ţessu fjármagni til eflingar menningarlífs í D.I.F.N.Um rekstur leikfélagsins er vísađ
til laga leikfélagsins Ultima Thule og skal stjórn D.I.F.N. hafa afrit af lögum leikfélagsins hverju
sinni.

Ađild ađ samtökum

§ 29
Félagiđ getur gerst ađili ađ öđrum samtökum. Tillaga um ađild skal hljóta sömu málsmeđferđ og
lagabreytingar. Fulltrúar DIFN í samtökum sem félagiđ er ađili ađ skulu kosnir á ađalfundi.

Brottvikning

§ 30
Brottrekstur úr félaginu skal borinn undir almennan félagsfund og hafi ţá komiđ fram tillaga ţar ađ
lútandi frá eigi fćrri en ţriđjungi félagsmanna. Tillagan er ţví ađeins samţykkt ađ meirihluti
fundarmanna greiđi henni atkvćđi.

Lagabreytingar

§ 31
Breytingar á lögum ţessum má eingöngu gera á ađalfundi eđa aukaađalfundi.
Tillögur um lagabreytingar, sem leggja á fyrir ađalfund, skulu berast formanni skriflega ţremur
dögum fyrir ađalfund, sbr. § 6.
Til lagabreytinga ţarf 2/3 greiddra atkvćđa.
Lagabreytingar skulu birtar félagsmönnum.

Félagslíf

§ 32
Ákvörđun um ađ leysa upp félagiđ er ađeins hćgt ađ taka á ađalfundi, ţar sem a.m.k. 2/3
atkvćđisbćrra félagsmanna eru mćttir og ţarf til 2/3 atkvćđi fundarmanna. Ef ađalfundur, sem
sóttur er af fćrri en 2/3 atkvćđisbćrra félagsmanna, samţykkir ađ leysa upp félagiđ međ 2/3
atkvćđa, skal bođađ til nýs ađalfundar. Ţar er hćgt ađ taka ţá ákvörđun ađ leysa upp félagiđ, ef
2/3 fundarmanna samţykkja ţađ.

§ 33
Ef félagiđ verđur leyst upp skal afhenda rćđismanni Íslands á Norđur Jótlandi allar eigur ţess til
varđveislu.

Gildistökuákvćđi

§ 34
Lög ţessi öđlast gildi viđ lok ţess ađalfundar sem samţykkir ţau í samrćmi viđ fyrirmćli áđur
gildandi laga.